Axel Þorsteinsson keppti í Global Pastry Chefs Challenge

Kvörtun Konditorsambands Íslands yfir notkun Reynis bakara á heitinu – KONDITORI
20.02.2015
Ragnheiður Ýr Markúsdóttir – Konditor
Ragnheiður nýútskrifuð úr konditorskólanum í Ringsted| Starfar nú sem Konditor í Mosfellsbakarí
14.07.2015
Sýna allt

Axel Þorsteinsson keppti í Global Pastry Chefs Challenge

Axel Þorsteinsson bakari & konditor

Axel Þorsteinsson bakari & konditor

Global Pastry Chefs Challenge eða keppnin um besta konditor Norður Evrópu var haldin samhliða Norðurlandaþingi matreiðslumanna í Álaborg í Danmörku dagana 4.-6. júní s.l.

Íslenski keppandinn Axel Þorsteinsson er 26 ára og starfar á Apótek Restaurant, en hann sigraði í keppninni „bakari ársins“ árið 2011.  Axel er meðlimur í Konditorsambandi Íslands.

Keppnin var spennandi og mikil reynsla sem maður fær í keppni sem þessari. Reynslan nýtist í framtíðinni í áframhaldandi keppnum og í mínu fagi við eftirréttagerð.

Segir Axel sem stefnir á frekari keppnir og var nýlega valinn í Kokkalandsliðið.

Axel gerði eftirrétti og sýningarstykki í keppninni sem svo var dæmt af hópi dómara. Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari úr Mosfellsbakarí var fulltrúi Íslands í dómnefndinni.

Keppnisúrslit í „Global Pastry Chefs Challenge“ eða um besta konditor Norður Evrópu og sigurvegari í þeirri keppni varð Frida Bäcke frá Svíþjóð.

Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Klúbbi Matreiðslumeistara.

Það er Klúbbur matreiðslumeistara sem sendir sex keppendur til leiks í sex einstaklingskeppnum í Danmörku dagana 4.-6. júní, en klúbburinn hefur ávallt unnið að eflingu íslenskrar matreiðslu og matarmenningar með rekstri Kokkalandsliðsins.

 

Mynd: Sveinbjörn Úlfarsson